Það hefur verið sérlega áhugavert að fá að fylgjast með því starfi sem
fram fer í Hreyfilandi við Eiðistorg. Krisztina leggur mikla áherslu á grunnfærni og undirstöðuatriði sem þurfa að vera til staðar til að framfarir verði hjá hverju barni hvað
varðar hreyfiþroska og hreyfifærni. Þær æfingar sem þarna fara fram eru mjög fjölbreyttar og markvisst horft á áhrif hverrar æfingar sem valin er í hverjum tíma. það er sérlega
hvetjandi að sjá kennara taka jafn virkan þátt en hún gerir allar æfingar með börnunum og tengir við þær tónlist, leiki og annað sem kætir börnin og örvar skynfærin.
Þessar æfingar eru mikilvægar fyrir öll börn en ekki síst börn með
Stuðningsþarfir. Rannsóknir hafa sýnt að snemmtæk íhlutun getur reynst sérlega áhrifarík,
ekki síst fyrir börn sem á einhvern hátt eru með skertan hreyfiþroska.
Íþróttasamband fatlaðra hefur undanfarin ár kynnt verkefni sem tengist
snemmtækri íhlutun varðandi hreyfiþroska barna en verkefnið hefur m.a.
verið kynnt í leikskólum Mikilvægt samstarf hefur verið við Hreyfiland vegna þessa verkefnis.
Með þakklæti fyrir frábært samstarf og til hamingju með mikilvægt starf
Krisztina
Kveðja
Anna Karólína Vilhjálmsdóttir,
Frksvstj. Special Olympics á Íslandi/
Þróunarsviðs
Ég var fyrst hjá þér 2007 með hann Snævar minn. Fyrst vorum við í
mæðrafimi og snillingafimi. Með Hjálmar vorum við í snillingafimi og
hreyfifimi 2015. Hef ávallt fundist faglega að tímanum staðið og gott að
gera eitthvað með barninu sem skilar sér í betri þroska hjá barninu.
Snævar er greindur með einhverfu og Hjálmar er mikill fyrirburi en það
hefur klárlega hjálpað upp á þroska hjá þeim báðum að byrja snemma að
örva taugakerfið í tímunum hjá Hreyfilandi. Mæli mikið með hreyfingu í
Hreyfilandi
Bergrún Stefánsdóttir,
íþróttafræðingur, fagstjóri hreyfingar hjá Skólar
Leikskóli
Hreyfiþroski dóttur okkar (4 ára) var ekki í takt við annan þroska,
þrátt fyrir að hún stundaði íþróttir. Í einkaþjálfun hjá Krisztinu í
Hreyfilandi hefur henni farið ótrúlega mikið fram og getur nú gert
fjölmarga hluti eins og að hjóla og klifra, sem hún ekki gat áður.
Sigurður Freyr Hafstein
prófessor í stærðfræði við Háskóla Íslands
Dætur okkar (18 mánaða og 4 ára) eru báðar í hóptímum í Hreyfilandi.
Þeim finnst mjög gaman og hlakkar alltaf til að fara og hafa lært
heilmikið.
Maria Bongardt
lyfjafræðingur 2ja barna móðir
Krisztina er ótrúlega fróð um hreyfiþroska barna og við höfum svo
sannarlega notið góðs af því. Fyrst með dóttur okkar fyrir 8 árum síðan
en hún er með hreyfi- og þroskahömlun. Henni fór mikið fram í
þjálfuninni hjá Krisztinu og við notum margt úr þjálfuninni enn þann dag
í dag. Nú eigum við líka einn 9 mánaða snáða sem náði að fara í nokkur
skipti í Hreyfiland áður en við fórum í ferðalag í fæðingarorlofinu en
höfum sömuleiðis notað þær æfingar heimafyrir og hlökkum til að koma
aftur í tíma í sumar. Andrúmsloftið er afslappað og foreldrar fá að
njóta gæðasamverustundar með barninu sínu í öruggu og gefandi umhverfi
Hreyfilands og Krisztinu.
Kærar þakkir fyrir okkur,
Guðrún, Árni, Halldóra María og Arnaldur Smári
Ég var með son minn í Hreyfilandi frá 12 vikna aldri til tveggja ára.
Fyrst vorum við í Mæðrafimi þar sem hluti tímans var fyrir börnin og
síðan var hann í Snillingafimi og Hreyfifimi. Krisztina hefur mikla
þekkingu á hreyfiþroska barna, hún fylgist vel með hverju og einu barni
og gefur foreldrum ráð og æfingar til að þjálfa ákveðna þætti ef þörf er
á. Þetta var frábær og skemmtilegur tími fyrir okkur fjölskylduna og við
lærðum mikið um hreyfiþroska barna. Ég mæli heilshugar með Krisztinu og
Hreyfilandi!
Birta Bæringsdóttir
MD
Krisztina er skemmtileg og dínamískur þjálfari. Ég var hjá henni í tímum
eftir meðgöngu ásamt fjölda tíma fyrir börnin mín í gegn um árin. Þau
nutu þess einnig að fara til hennar á leikskólatíma að skemmta sér og
hreyfa sig.
Eliza Reid
4ja barna móðir
Láttu okkur vita!
Hreyfiland er fjölskyldumiðstöð sem býður upp á hreyfiþjálfun leidd af hæfum barnaþroskaþjálfara og líkamsrækt fyrir barnshafandi.